Fréttatíminn

Engum háður

Thursday, February 6, 2014

Líftíminn - Febrúar 2014

Líftíminn er blað fyrir áhugafólk
um heilbrigðismál
Föstudaginn 14. febrúar 2014 kemur Líftíminn út í annað skiptið árinu.  Líftíminn er blað fyrir áhugafólk um heilbrigðismál, heilbrigðisstarfsmenn og aðra þá sem þurfa að nýta sér þjónustu heilbrigðiskerfisins. Í næsta blaði horfum við fram á veginn og skoðum nýsköpum hér á landi  í heilbrigðisvísindum.

Líftíminn er kjörinn staður fyrir þá sem þurfa að koma skilaboðum til þessa hóps. Gríðarleg útbreiðsla tryggir mikla athygli og gott blað góða umgjörð fyrir skilaboðin frá þér.

Blaðið er 16 síður, prentað í 85.000 eintökum, dreift um allt land og kemur út út að jafnaði annan föstudag hvers mánaðar. Því er dreift í allar lúgur á höfuðborgarsvæðinu og flestar á Akureyri. Þá er því dreift í lausadreifingu um land allt. Að auki mun það liggja frammi á sjúkrastofnunum víða um land. Blaðið fylgir Fréttatímanum á föstudögum.

Líftíminn er að skjóta rótum bæði hjá hagsmunaaðilum og lesendum. Hafðu samband við auglýsingadeild Fréttatímans og fáðu frekari upplýsingar.Hér getur þú skoðað fyrsta tölublað af Líftímanum. 

No comments:

Post a Comment