Það eru bráðum 6 mánuðir síðan útgáfa Fréttatímans hófst. Á þessum tíma höfum við náð fótfestu sem sterkur auglýsingamiðill sem skilar auglýsendum árangri og blaðið ber sig ágætlega fjárhagslega. Útgáfa blaðssins hefur aukið samkeppni á auglýsingamarkaði til hagsbóta fyrir auglýsendur og þar með neytendur. Fréttatíminn er óháð blað í eigu nokkura starfsmanna þess og er ekki háð viðskipt- eða hagsmunablokkum. Fréttatíminn er blaðið þitt.
Í næsta blaði 25.mars verðum við með 6 síðna fermingarumfjöllun í Fréttatímanum. Með blaðinu fylgir líka blað um Vetraríþróttir. Þungamiðja þess blaðs er umfjöllun um Akureyri og nágrenni.
Í blaðinu 1. apríl sláum við botninn í fermingarumfjöllun Fréttatímans með fermingagjafahandbók. Ef þú hefur áhuga á því að vera með auglýsingu eða ert með hugmynd að umfjöllun þá endilega hafðu samband við undirritaðan. Í sama blaði verðu sérkafli helgaður heilsu.
15. apríl fylgir Fréttatímanum veglegt páskablað. Í því blaði verður allt varðandi páskana framundan. Þar verður dagskrá viðburða víða um land sem og umfjöllun um mat og drykki.

No comments:
Post a Comment