Fréttatíminn

Engum háður

Thursday, March 31, 2011

Mælingar Capacent - helstu niðurstöður

Capacent kynnti nýverið mælingar á lestur og flettingu á blöðum. Sameiginlegar mælingar höfðu legið niðri allar götur síðan í október 2010 vegna ósættis meðal gömlu miðlana um framkvæmd mælinganna. Síðan þá hefur ekki verið mælt sameiginlega, sem hefur verið bagalegt fyrir auglýsendur. Capacent hjó á þennan hnút og hóf mælingar um síðustu áramót og fögnum við því framtaki.

Nauðsynlegt er fyrir auglýsendur að sjá útbreiðslu miðla í einstökum markhópum en á sama tíma er rétt að brýna að aðrir hlutir skipta líka máli þegar kemur að vali á því hvar auglýsing er birt. Þar skiptir umhverfið miklu, fjöldi auglýsinga og hlutfall þeirra af prentuðum síðum, staðsetning og að sjálfsögðu verð, svo nokkur dæmi séu tekin. Auglýsing getur til að mynda horfið í umhverfi þar sem aukablað tekur við af aukablaði af aukablaði af aukablaði, rétt eins í rússneskri babúsku.

Helstu niðurstöður

Fréttablaðið er með 60% lestur/flettingu og hefur ekki mælst lægra síðan í okt. 2009 þegar dreifing var skorin niður. Fréttatíminn mælist með 42 % lestur/flettingu á landsvísu í þessari - í raun - fyrstu stóru mælingu sinni. Morgunblaðið mælist með 33% lestur/flettingu og hefur lestur/fletting á Morgunblaðið aukist frá síðustu mælingum. DV kemur aftur inn í mælingar og mælist lestur/fletting DV 12%.

Ef horft er á kjarnasvæði Fréttatímans, Höfuðborgarsvæðið er lestur/fletting Fréttablaðsins þar 73%, Fréttatíminn er með 55%, Morgunblaðið 36% og DV líka 12% á því svæði eins og á landinu öllu.

Lestur markhópa á höfuðborgarsvæðinu

Þarna er ekki öll sagan sögð eins og þið þekkið. Þið kaupið ekki auglýsingu í meðalblaði dagblaðana því það er ekki til. Þið kaupið auglýsingu í blöðum á ákveðnum vikudögum.

Eðlilegt er því að bera saman lestur á helgarblöðum miðlana, skoðum það.

Á höfuðborgarsvæðinu búa 162.462 manns á aldrinum 12 til 80 ára. Af þeim lesa/fletta 55% Fréttatímann eða tæplega 90 þúsund manns.

Á landinu öllu lásu/flettu 62% landsmanna að jafnaði laugardagsblaði Fréttablaðsins, sem er fyrir ofan daglega meðaltalið. Hinsvegar lásu/flettu um 68% íbúa höfuðborgarsvæðisins laugardagsblaði Fréttablaðsins, sem er talsvert fyrir neðan meðaltalið sem er 73%. Morgunblaðið er á höfuðborgarsvæðinu með 34% lestur/flettingu á laugardagsútgáfuna og DV með 13%, sem kemur á óvart. Búast hefði mátt við meiri mun á virkum dögum og helgum hjá DV.

Höldum áfram. Ef við skoðum 25 til 80 ára þá lesa/fletta 74% Fréttablaðinu, 63% Fréttatímanum, 37% Morgunblaðinu og 15% DV á höfuðborgarsvæðinu.

Við erum ánægð með þessa stöðu eftir sex mánaða útgáfulíf Fréttatímans. Fréttatíminn er með mjög sterka stöðu og sérstaklega á höfuðborgarsvæðinui og er sannarlega góður valkostur auglýsenda.

Lifi samkeppnin

No comments:

Post a Comment