| Fyrsta forsíða Fréttatímans |
Lestrarkannanir hafa frá upphafi sýnt stöðugan og mikinn lestur Fréttatímans. Efni blaðsins höfðar til karla og kvenna á öllum aldri en ekki síst til kvenna. Kannarnir sýna að um tveir þriðju kvenna á höfuðborgarsvæðinu, á aldrinum 25 ára og eldri, lesa blaðið reglulega. Það er mikil traustsyfirlýsing sem aðstandendur blaðsins þakka nú þegar blaðið fagnar fimm ára afmæli, en sýnir um leið að stefnan sem lögð var í upphafi var rétt. Auglýsendur vita jafnframt, þegar að vali á auglýsingamiðli kemur, að þessi heildarhópur kvenna er verðmætasti markhópur þeirra, innkaupastjórar heimilanna.
Við þetta bætist að kannanir sýna enn fremur að Fréttatíminn er ekki aðeins lesinn á útkomudegi, föstudegi, heldur dreifist lesturinn líka á laugardaga og sunnudaga. Blaðið hefur því langan líftíma, er stútfullt af spennandi efni sem fólk gefur sér tíma til að lesa alla helgina, þegar stund gefst milli stríða í annríki daganna.
Samhliða útgáfu Fréttatímans er blaðið öflugt á vefnum, frettatiminn.is. Þar hafa lesendur, hvar sem þeir eru staddir, aðgang að blaðinu í heild, efni og auglýsingum, en auk þess er áhugaverðasta efni blaðsins sett á vefinn, auk annars efnis sem daglega bætist við. Þá er frettatiminn.is vaxandi auglýsingamiðill, hvort heldur er sjálfstæður eða í tengslum við blaðið. Nú, á fimm ára afmæli Fréttatímans, er vefurinn kynntur í gerbreyttu og myndrænna formi, með auknu og aðgengilegra efni.
Þá er Fréttatímann vitaskuld að finna á Facebook þar sem efni er kynnt og lesendur geta auk þess dottið í lukkupottinn.
No comments:
Post a Comment