Fréttatíminn

Engum háður

Monday, March 19, 2012

Fótbolti, matur, heilsa og hönnun

Í Fréttatímanum 23. mars fjöllum við um mat og leggjum áherslu á páskamatinn. Þá verður í blaðinu umfjöllun um hið sígilda efni heilsu. Sem sagt heilsa og matur í blaðinu 23 mars.

Við erum líka að gera Evrópumeistaramóti í knattspyrnu góð skil í blaðinu um þessar mundir. Óskar Hrafn fótboltasnillingur hefur umsjón með þeim skrifum og verðum við með opnu í hverju blaði fram að móti í sumar. Þarna er laust auglýsingapláss enda fáir staðir betri til þess að ná í karlmenn en í námunda við bolta, er það ekki?

30. mars kemur Páskahandbókin út. Þar verður talið upp hvað er á döfinni um páskana um landið. Þá verður í blaðinu sérkafli um rúm.

Páskablaðið kemur út fimmtudaginn 5. apríl, á skírdag. Með því verður sérblað um brúðargjafir og sérkafli um heimilli og hönnun sem Sigga Heims hönnuður skrifar. Sigga Heimis heldur áfram að skrifa um hönnun í Fréttatímann og verður þessi sérkafli einu sinni í mánuði - alltaf í fyrsta tölublaði hvers mánaðar.

No comments:

Post a Comment