Fréttatíminn

Engum háður

Wednesday, June 8, 2016

Reykjavík Midsummer Music

Fréttatíminn er í styður Reykjavík Midsummer Music tónlistarhátíð sem haldin er í Reykjavík 16. til 20 júní 2016

Reykjavík Midsummer Music er tónlistarhátíð, stofnuð af Víkingi Heiðari Ólafssyni árið 2012 og haldin í samvinnu við Hörpu. Hátíðin, sem fer fram í kringum sumarsólstöður, hefur vakið athygli fyrir kraftmikla og frumlega dagskrá og laðar til landsins heimsþekkta listamenn sem leika með einvalaliði íslenskra listamanna. Reykjavík Midsummer Music hefur skipað sér sérstakan sess í íslensku menningarlífi, hlotið einróma lof gagnrýnenda og m.a. unnið Íslensku tónlistarverðlaunin sem „Viðburður ársins “ auk þess að hljóta sérstök nýsköpunarverðlaun, „Rogastans“.

Reykjavík Midsummer Music er hátíð fyrir hið forvitna eyra. Dagskrá hvers árs hverfist í kringum afmarkað þema sem tengir saman ólíkar tegundir tónlistar , tónlistarfólks – og oft ólíkar listgreinar. Listræn stefna hátíðarinnar einkennist af því að öll tónlist sem flutt er í dag flokkist í raun sem nútímatónlist, hvort sem hún var samin á 17. eða 21. öldinni. Þegar verkum úr ólíkum áttum og frá ólíkum tímum er teflt saman getur orðið mikill galdur, hverjir tónleikar að sögu sem aldrei fyrr hefur verið sögð. Þannig viljum við hafa það.

http://reykjavikmidsummermusic.com/


No comments:

Post a Comment