Fréttatíminn

Engum háður

Wednesday, May 4, 2016

Fréttatíminn - Aukin útgáfa

Morgundagur útgáfufélag Fréttatímans mun gefa út tvö blöð núna á  föstudaginn 6. maí; Fréttatímann og svo nýtt blað sem heitir amk. Amk fjallar um fólk og fjölskyldur, heilsu og heimili, mat og margskonar. Og bæði blöðin munu svo koma út á laugardaginn einnig.

Það er svo mikið að gerast í þessu samfélagi okkar að við á Fréttatímanum ætlum að gefa blaðið út tvisvar í viku hér eftir; bæði á föstudögum eins og vanalega og svo nýtt helgarblað á laugardögum. Það verður aldeilis skemmtilegt.

Fréttatíminn kemur því út tvisvar í viku héðan í frá og hefur auk þess eignast systurblað.

No comments:

Post a Comment