Fréttatíminn

Engum háður

Thursday, January 7, 2016

Vetrarhátíð 2016

Vetrarhátíð 2016 er hátíð ljóss og myrkurs og verður haldin í tólfta sinn 5.-8. febrúar 2015.

Af því tilefni gefum við út blað í samvinnu við bæjarfélög á höfuðborgarsvæðinu sem fylgir Fréttatímanum 5. febrúar.

Á Vetrarhátíð fær magnað myrkur að njóta sín en hátíðin verður öll hin glæsilegasta og mun fjöldi listamanna, safna og sundlauga taka þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni.

Vetrarhátíð er haldin á höfuðborgarsvæðinu og taka öll sex bæjarfélögin þátt. Sundlauganótt og Safnanótt eru meginstoðir hátíðarinnar ásamt ljóslistaverkum sem lýsa upp skammdegið á ævintýralegan hátt. Aðrir skemmtilegir viðburðir hátíðarinnar eru tónleikarnir Edmonton Calling Reykjavík, Snjófögnuður og Heimsdagur barna.

Af nógu verður að taka á þessum dimmu vetrardögum þar sem magnað myrkur fær að njóta sín í Reykjavík. Allir viðburðir hátíðarinnar eru gestum að kostnaðarlausu og er þar með séð til þess að allir borgarbúar geti notið kraftmikils menningarlífs og góðrar samveru yfir alla hátíðina.
Þetta er tilvalin staður til þess að tengjast markhópi þínum með skilaboðum. Hafðu samband við auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3310 eða á auglysingar@frettatiminn.is og fáðu nánari upplýsingar.

Á Vetrarhátíð fær magnað myrkur að njóta sín og er líst upp með áhrifamiklum ljósalistaverkum og vetrarviðburðum. Öll bæjarfélögin tak þátt í hátíðinni, bæði á Safnanótt og Sundlauganótt. Við hvetjum gesti Vetrarhátíðar að nýta sér strætóferðir á Safnanótt og ganga í sundlaugar á Sundlauganótt.




No comments:

Post a Comment