 |
| Gigja Þórðardóttir |
Umfjöllun um heilsu í Fréttatímanum mun aukast með haustinu. Fréttatíminn hefur hafið samstarf við sjónvarpsstöðina Hringbraut og doktor.is um eflingu á heilsuumfjöllun undir merkjum Heilsutímans. Sjónvarpsþátturinn
Heilsutíminn verður sýndur á mánudagskvöldum kl:20 á Hringbraut í vetur. Auk þess mun Teitur Guðmundsson læknir ganga til liðs við Heilsutímann og vera með fasta pistla í blaðinu og í sjónvarpsþættinum. Heilsutíminn verður hér eftir í Fréttatímanum eins og áður og á heimasíðu Fréttatímans og á sjónvarpsstöðinni Hringbraut eins og áður sagði.
 |
| Teitur Guðmundsson læknir |
Sjónvarpsþátturinn verður frumsýndur á mánudagskvöldum klukkan 20 og endursýndur nokkrum sinnum í vikunni. Umsjónarmaður með þáttunum er Gígja Þórðardóttir sjúkraþjálfari. Hún mun einnig hafa yfirumsjón með Heilsutímanum í Fréttatímanum. Í Heilsutímanum verður fjallað um allt það nýjasta í heilsurækt og hvað fólk getur gert til að efla sjálft sig. „Þar verður meðal annars farið yfir nýjar rannsóknir í heilsugeiranum, viðtöl við fagfólk og gefin góð ráð til lesenda varðandi mataræði, hugarfar, hreyfingu og margt fleira,“ segir Gígja. „Við munum einnig kynnast ýmsum heilsueflandi námskeiðum og fjalla nánar um heilsutengd efni sem við höfum tekið fyrir í blaðinu, líkt og heilsu móður og barns, svo dæmi sé tekið.“
Þetta er gott tækifæri fyrir þá fjölmörgu hagsmunaaðila sem þurfa að koma skilaboðum til þessa markhóps. Við bjóðum jöfnum höndum auglýsingar og kynningar í Heilsutímann. Þannig getum við þjónustað jafnt stóra sem smáa viðskiptavini. Þarna fer saman gríðarleg útbreiðsla með Fréttatímanum og góð tenging við viðskiptavini í sjónvarpi og á netinu.
No comments:
Post a Comment