Fréttatíminn

Engum háður

Wednesday, July 22, 2015

Sérblöð Fréttatímans í ágúst.

Það verður mikið um að vera í ágúst á Íslandi og við fylgjum því vel eftir á Fréttatímanum.


Fyrstu helgina í ágúst er verslunarmannahelgin með tilheyrandi hátíðarhöldum um allt land. Við verðum með sérkafla um útileguna og útivist í því blaði.


Í blaðinu þann 7. ágúst verðum við með sérblað um ferðir. Þar verður lögð sérstök áhersla á haust- og vetrarferðir. Í þessari viku hefjast Hinsegin dagar. Hátíðin er orðin ein af þremur stærstu útihátíðum þjóðarinnar með um eða yfir sjötíu þúsund þátttakendum og hefur vaxið úr eins dags hátíð í sex daga menningarhátíð. Í blaðinu verður einnig sérkafli um heimili og hönnun.


Um og upp úr miðjum ágúst verða skólar landsins settir. Þá er handagangur í öskjunni því það eru um 42 þúsund grunnskólanemendur, 29 þúsund  framhaldskólanemendur og 19 þúsund  háskólanemar sem hefja nám á þessum tíma. Þessir nemendur þurfa skólavörur og skólabækur þannig að það er til mikils að vinna að fanga athygli þeirra. Föstudaginn 14. ágúst verður sérblað í Fréttatímanum sem fjallar um upphaf skóla.


Menningarnótt í miðborginni verður haldin í tuttugusta sinn 22. ágúst næstkomandi. Við á Fréttatímanum munum gefa út blað að venju 21. ágúst þar sem menningarnótt er gerð skil.

Heilsublað Fréttatímans kemur út 28. ágúst. Þar verður fjallað verður um allt það nýjasta í heilsurækt og hvað fólk getur gert til að efla sjálft sig. Þar verða m.a. kynnt ýmis námskeið sem hefjast á haustmánuðum, gefin góð ráð til lesenda varðandi mataræði, hugarfar og hreyfingu og margt fleira.





No comments:

Post a Comment