Fréttatíminn

Engum háður

Friday, April 10, 2015

Viðhald húsa 24. apríl næstkomandi

Með Fréttatímanum 24. apríl fylgir sérblað um viðhald húsa. Við höfum gefið út blað um viðhald húsa í samvinnu við Húseigendafélagið og fleiri aðila í fjögur ár. Þetta er því fimmti árgangur blaðsins.

Blaðið er skrifað af fagfólki og blaðamönnum og einnig verða í því kynningar frá fyrirtækjum. Þar verður fjallað almennt um viðhald húsa, rekstur húsfélaga og það sem lýtur að rekstri á húseignum almennt. Við fjöllum líka um viðhald á gluggum, viðhald gamalla húsa, utanhússmálingu, flísalagnir og parket.

Fréttatíminn er lesinn af yfir 100.000 manns í hverri viku. Það eru ekki margir miðlar sem geta boðið þvílíkan fjölda lesanda. Við fullyrðum að snertiverðið er með því lægsta sem þú finnur á auglýsingamarkaði. Til þess að ná forskoti er mikilvægt að vera séður og auglýsa þar sem þú nærð í sem flesta af markhópnum.

Hafið samband við auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3310 eða með tölvupósti auglysingar@frettatiminn.is

No comments:

Post a Comment