Það styttist í fermingarveislurnar og eflaust margir foreldrar fermingarbarna að skipuleggja þær um þessar mundir. Föstudaginn 20 febrúar og 27. febrúar verða sérkaflar um fermingar í Fréttatímanum. 6. mars gefum við hins vegar út veglegt fermingarblað Fréttatímans. Eftir það verðum við svo með fermingarumfjöllun í öllum blöðum fram að páskum.
Markmið okkar er, eins og áður, að gefa út gæðablað með áhugaverðu efni fyrir alla sem huga að fermingu þetta árið. Hvort sem það snertir matinn, veisluna, fötin, gjafir eða annað sem tengist fermingunni, verður fjallað um það á vandaðan máta í fermingarblaði Fréttatímans.Hikaðu ekki við að hafa samband við auglýsingadeild Fréttatímans og við getum aðstoðað þig við að ná í markhópinn þinn.
No comments:
Post a Comment