Verkfall lækna
Föstudaginn 14.nóvember gefum við út tíunda tölublaðið af Líftímanum og fögnum um leið 1 árs afmæli blaðsins. Nýr ritstjóri tók við blaðinu nú í haust þegar Sigríður Dögg Auðunsdóttir blaðamaður og nýráðinn þróunarstjóri Fréttatímans tók við keflinu af Höskuldi Daða Magnússyni.
Nú stendur mikill styr um heilbrigðiskerfið, læknar í verkfalli í fyrsta sinn í sögunni og deilt um hvaða leiðir á að fara til útbóta. Meðal spurninga sem eru spurðar í Líftímanum eru:
- Er nýr spítali lausnin?
- Afhverju drögumst við aftur úr nágrannaþjóðum okkar hvað varðar tækjakost og þjónustu?
- Hvað er að gerast í lyfjamálum?
- Er nægu fjármagni veitt í nýsköpun innan heilbrigðisgeirans?
- Hvernig getum við tekið höndum saman og eflt heilbrigði þjóðarinnar?
Líftíminn er að skjóta rótum bæði hjá hagsmunaaðilum og lesendum.
Líftíminn er blað fyrir áhugafólk um heilbrigðismál, heilbrigðisstarfsmenn og aðra þá sem þurfa að nýta sér þjónustu heilbrigðiskerfisins. Líftíminn er því kjörinn staður fyrir þá sem þurfa að koma skilaboðum til þessa hóps. Gríðarleg útbreiðsla tryggir svo mikla athygli og gott blað góða umgjörð fyrir skilaboðin frá þér.
Blaðið er 16 síður að jafnaði, prentað í 85.000 eintökum, dreift um allt land og kemur út út að jafnaði annan föstudag hvers mánaðar. Því er dreift í allar lúgur á höfuðborgarsvæðinu og flestar á Akureyri. Þá er því dreift í lausadreifingu um land allt. Að auki mun það liggja frammi á sjúkrastofnunum víða um land. Blaðið fylgir Fréttatímanum annan föstudags hvers mánaðar.
Hafðu samband við Gígju Þórðardóttur auglýsingastjóra Líftímans í síma 531 3312 eða með tölvupósti á gigja@frettatiminn.is og fáðu nánari upplýsingar um blaðið.
No comments:
Post a Comment