Fréttatíminn

Engum háður

Thursday, November 6, 2014

Fréttatíminn í nóvember 2014



14. nóvember kemur Líftíminn út. Ár er síðan fyrsti Líftíminn kom út og var tilefnið ærið á sínum tíma og er ekki síðu aðkallandi núna. Líftíminn er blað fyrir áhugafólk um heilbrigðismál, heilbrigðisstarfsmenn og aðra þá sem þurfa að nýta sér þjónustu heilbrigðiskerfisins.

Sérkafli um bækur verður í Fréttatímanum 21. nóvember.  Þar munum við fjalla um jólabækurnar, greina jólabókamarkaðinn, segja frá því sem er á döfinni hjá útgefendum fyrir þessi jól og kíkja í nokkrar bækur. Bókaumfjöllun verður líka á einni til tveimur síðum í Fréttatímanum fram að jólum. Þar verða bækur gagnrýndar og sagt frá hvernig bækur seljast, ásamt öðru efni. 


Í sama blaði verður heimiliskafli þar sem fjallað verður um jólaskreytingar. Það er þá stutt í aðventu og fólk að huga að undirbúningi fyrir jólin. 


Minnum á að Jólablað Fréttatímans 2014 kemur út miðvikudaginn 26. nóvember. Mikið verður lagt í jólablaðið að þessu sinni og það borgar sig fyrir auglýsendur að vera sýnilegir í blaðinu. Í því verður spennandi, jólatengt efni af ýmsum toga, skrifað af reyndum blaðamönnum, en að auki verða í blaðinu vörukynningar í samvinnu við fyrirtæki.


Í blaðinu 28 nóvember verður fókusinn á jólafötunum og öllu sem þeim fylgir. Við verðum með kynningar á jólafötum fyrir alla fjölskylduna.





No comments:

Post a Comment