Í þessari viku hefjast Hinsegin dagar. Hátíðin er orðin ein af þremur stærstu útihátíðum þjóðarinnar með um eða yfir sjötíu þúsund þátttakendum og hefur vaxið úr eins dags hátíð í sex daga menningarhátíð og er enn að vaxa. Fréttatíminn mun fjalla um viðburði tengda Hinsegin dögum í sérkafla föstudaginn 8. ágúst.

Um miðjan mánuðinn verða skólar landssins settir. Þá er handagangur í öskjunni því Það eru um 42.000 grunnskólanemendur, 29.000 framhaldskóla-nemendur og 19.000 nemendur á háskólastigi sem hefja nám á þessum tíma. Þetta fólk þarf skólavörur og skólabækur þannig að það er til mikils að vinna að fanga athygli þeirra. Föstudaginn 15. ágúst 2014 verður í Fréttatímanum sérblað sem fjallar um upphaf skóla.
Menningarnótt í miðborginni verður haldin í nítjánda sinn 23. ágúst næstkomandi. Við á Fréttatímanum munum gefa út blað 22. ágúst í samstarfi við Reykjavíkurborg. Yfirskrift hátíðarinnar í ár er „Gakktu í bæinn!“ sem vísar til þeirrar gömlu og góðu hefðar að bjóða fólk velkomið og gera vel við gesti.

Föstudaginn 29. ágúst verður sérkafli um heilsu í Fréttatímanum þar sem fjallað verður um allt það nýjasta í heilsurækt og hvað fólk getur gert til að efla sjálft sig. Þar verða m.a. kynnt ýmis námskeið sem hefjast á haustmánuðum, gefin góð ráð til lesenda varðandi mataræði, hugarfar og hreyfingu og margt fleira.
Sérkaflar og blöð Fréttatímans eru vönduð og uppsetning þeirra miðast við að ná hámarksathygli lesenda og koma á framfæri gagnlegum upplýsingum. Við leggjum okkur fram um að finna þá leið sem hentar hverjum og einum auglýsanda við að koma sinni þjónustu á framfæri.

No comments:
Post a Comment