Fréttatíminn

Engum háður

Friday, August 29, 2014

Fréttatíminn - September

Í september verður Fréttatíminn stútfullur af skemmtilegu efni.

  • 5. september - Heimili og hönnun
  • 12. september - Líftíminn
  • 19. september - Vetrarferðir
Við verðum með glæsilegan sérkafla um heimili og hönnun í Fréttatímanum föstudaginn 5. september. Í kaflanum verða bæði auglýsingar og kynningar. Það er því auðvelt fyrir auglýsendur að koma skilaboðum til viðskipavina sinna. 

Þetta er rétti staðurinn til að auglýsa hönnun og allt sem viðkemur heimilinu, hvort sem um ræðir gólfefni, innréttingar, húsgögn eða smærri hluti.

12. september kemur Líftíminn út að nýju eftir sumarfrí. Líftíminn er blað fyrir áhugafólk um heilbrigðismál, heilbrigðisstarfsmenn og aðra sem þurfa að nýta sér þjónustu heilbrigðiskerfisins. Í næsta blaði horfum við fram á veginn og skoðum nýsköpun hér á landi í heilbrigðisvísindum.

Líftíminn er kjörinn staður fyrir þá sem þurfa að koma skilaboðum til þessa hóps. Gríðarleg útbreiðsla tryggir mikla athygli og gott blað góða umgjörð fyrir skilaboðin frá þér.

Við verðum með veglegan sérkafla um vetrarferðir í blaðinu hjá okkur 19. september. Kaflinn verður hæfileg blanda af efni frá okkur auk kynninga á ýmsum vetrarferðum sem í boði eru þetta haustið. 

Auglýsendur geta, sem fyrr, valið um að vera með hefbundnar auglýsingar, kynningar eða blöndu af hvoru tveggja. Við bjóðum gæðaefni, um 100.000 lesendur og gott snertiverð.
Nánari upplýsingar veita Baldvin og Gígja í símum 531-3311 og 531-3312 eða með tölvupósti á baldvin@frettatiminn.is og gigja@frettatiminn.is


No comments:

Post a Comment