Fréttatíminn

Engum háður

Monday, May 19, 2014

Viðhald húsa og útivist í næsta Fréttatíma 23. maí.

Með næsta Fréttatíma fylgir sérblað um viðhald húsa. Við höfum gefið út blað um viðhald húsa í samvinnu við Húseigendafélagið og fleiri aðila í þrjú ár. Við höldum því áfram á þessu ári og kemur næsta blað út næsta föstudag 23. maí. 

Blaðið er skrifað af fagfólki og blaðamönnum í bland við kynningar frá fyrirtækjum. Þar verður fjallað almennt um viðhald húsa, rekstur húsfélaga og það sem lýtur að rekstri á húseignum almennt. 

Í sama blaði verður sérkafli helgaður hlaupum og útivist. Útivist ýmis konar hefur notið gríðarlegra vinsælda undanfarin ár og má segja að það hafið orðið sprenging í fjölda þeirra sem stunda útivist af ýmsu tagi.  Þetta er því rétti staðurinn til þess að auglýsa íþrótta- og útivistarvörur.

Svo verða fastir kaflar um heilsu, grænan lífsstíl, tísku, menningu, mat og vín, bíla og frítíminn verður helgaður sporti eins og áður.  Ekki missa af þessu blaði þú finnur örugglega eitthvað við þitt hæfi.

No comments:

Post a Comment