Næsta föstudag verðum við með veglegan sérkafla um grill. Þetta verður glæsilegur kafli sem Haraldur Jóhanson, Hari stýrir af sinni alkunnu list. Hari gaf út blað um mat, Matargatið við góðar undirtektir fyrir nokkrum árum. Ef þú ert með grill eða grilláhöld, mat eða drykk, eða fylgihluti, átt þú heima með upplýsingar um þína vöru í þessu blaði.
Í sama blaði verður kafli sem helgaður er umhirðu húðar. Þessir sérkaflar hafa mælst vel fyrir hjá auglýsendum og lesendum. Hún Kristi Jo heldur utan um kaflann um umhirðu húðar af snilld. Þar munum við skoða sérstaklega, sólarvarnir, góð ráð við sólbruna, serum, dagkrem og margt fleira.
Viðhald húsa kemur svo út 23. maí. Viðhald húsa hefur slegið í gegn enda er það vandað sérblað þar sem auglýsendur geta nálgast markhópinn beint. Blaðið er skrifað af fagfólki og blaðamönnum í bland við kynningar frá fyrirtækjum.
Í sama blaði verður sérkafli helgaður hlaupum og útivist. Útivist ýmis konar hefur notið gríðarlegra vinsælda undanfarin ár og má segja að það hafið orðið sprenging í fjölda þeirra sem stunda útivist af ýmsu tagi. Þetta er því rétti staðurinn til þess að auglýsa íþrótta- og útivistarvörur.
No comments:
Post a Comment