Fréttatíminn

Engum háður

Monday, April 7, 2014

Barnamenningarhátíð í Reykjavík - Sérblað 25 apríl.

Barnamenningarhátíð í Reykjavík verður haldin 29. apríl til 4. maí 2014.

Þar verður að finna fjölda viðburða sem börn og fullorðnir, í fylgd með börnum, geta sótt sér að kostnaðarlausu um alla borg!Hátíðin verður öll hin glæsilegasta og mun fjöldi listamanna taka þátt í að skapa einstaka stemningu á hátíðinni. Dagskrá Barnamenningarhátíðar inniheldur viðburði frá menningar- og listastofnunum, listhópum, listamönnum, félagasamtökum, listaskólum, grunnskólum, leikskólum og frístundaheimilum.

Við munum gera þessari hátíð góð skil með sérblaði 25 apríl, blaðinu strax á eftir páska.

No comments:

Post a Comment