Fréttatíminn

Engum háður

Wednesday, January 2, 2013

Fréttatíminn - Janúar 2013


Við hefjum árið með sérblaði um heilsu sem fylgir Fréttatímanum núna á föstudaginn 4. janúar. í blaðinu 11. janúar verður svo sérkafli um skóla og námskeið og einnig sérkafli um ferðalög. Margir bíða spenntir eftir HM í handbolta, sem hefst 12. janúar og við verðum við að sjálfsögðu með sérkafla í Fréttatímanum um þessa handboltaveislu sem þjóðin fylgist spennt með.

Í síðasta blaði janúar sem kemur út þann 25. fylgir Fréttatímanum Vetrarfjör, sérblað um vetraríþróttir en það er fastur liður í blaðinu okkar á þessum tíma..  Í Vetrarfjöri fjöllum við eins og nafnið bendir til um vetrarútivist og vetraríþróttir. Í sama blaði verður að auki sérkafli um Þorrann, sem hefst 25 janúar.

Auk ofantalins verður að sjálfsögðu í blaðinu áfram föstu sérkaflarnir sem að lesendur okkar eru farnir að þekkja og leita að.

Takk fyrir samskiptin á árinu sem var að líða – við lítum full tilhlökkunar til ársins framundan.

No comments:

Post a Comment