Í fyrsta blaðinu í febrúar verðum við með fjölbreytt blað, stútfullt af skemmtilegu efni. Við verðum með nýjan kafla í blaðinu helgaðan viðskiptum. Jónas Haraldsson, ritstjóri og fyrrum ritstjóri Viðskiptablaðsins, mun sjá um þennan sérkafla.
Við verðum líka með sérkafla um langan laugardag í næsta blaði. Við verðum með sérkafla í upphafi mánaða það sem eftir lifir árs 2013. Það er stemning í miðbænum í upphafi mánaða þegar langur laugardagur er og við munum reyna að fanga þá stemningu.
Við verðum líka með heimiliskafla í blaðinu þar sem við fjöllum um, eins og nafnið gefur til kynna, allt sem við kemur heimilinu.
Sérkaflar um bíla, tísku, bíó, skák, heilabrot, leikhús, menningu, tónlist og heilsu verða á sínum stað og við höldum áfram að fjalla um ferðir í blaðinu.

No comments:
Post a Comment