![]() |
| 3.066 fleiri lesendur í nóvember |
Capacent mælir stöðugt lestur á blöðum og hefur gert frá því í janúar 2011. Við erum stolt af því að lestur Fréttatímans hefur ekki verið meiri frá því þessar mælingar hófust. Núna lesa tæplega 42% landsmanna á aldrinum 12 til 80 ára Fréttatímann og hefur þeim fjölgað um 3.066 frá því í síðasta mánuði. Til viðmiðunar eru íbúar Seltjarnarness 3.600 á þessum aldri. Mestu munar um aukinn lestur á höfuðborgarsvæðinu. Núna mælist lesturinn 55% en var 53% í október. Það eru um 2.700 fleiri sem lásu blaðið í nóvember en október. Á sama tíma fækkaði þeim sem lesa eða fletta Fréttablaðinu um rúmlega 1.100.
Það er því skiljanlegt að auglýsendur finni fyrir árangri þegar þeir auglýsa í Fréttatímanum. Það er ekki bara að fleiri lesi blaðið heldur líka hitt að fólk er að lesa blaðið aftur og aftur um helgar. Fréttatíminn er helgarblaðið.
Það eiga eftir að koma þrjú blöð út á þessu ári, 14. desember, 21. desember og 28. desember, Í þessum tveimur blöðum sem koma út fyrir jól verðum við í jólaskapi og fjöllum um jólin frá ýmsum sjónarhornum. Við verðum með sérkafla um jólatísku og jólagjafir sem við vinnum í samstarfi við ykkur, auglýsendur. Þá verður sérkafli um jólamatinn og vínin. Svo verða föstu liðirnir á sínum stað, menning, bækur, leikhús, bílar, heilsa, tíska og viðhorf.
Umfram allt munum við kappkosta að færa landsmönnum áhugavert blað að lesa í desember.
Munið að það eru brandajól og því er naumur tími í vinnslu á blaðinu sem kemur út 28. desember. Salan í blaðið er langt komin og hvetjum við ykkur til þess að ganga frá bókunum í blaðið sem fyrst til þess að tryggja ykkur góða staðsetningu.

No comments:
Post a Comment