Fréttatíminn

Engum háður

Friday, November 9, 2012

Fréttatíminn nóvember


Senn líður að jólum og jólaauglýsingar verða meira áberandi í fjölmiðlum á næstu dögum og vikum. Næsti Fréttatími sem kemur út 16. nóvember mun bera þess merki. Blaðið verður fjölbreytt að vanda, stútfullt af skemmtilegu efni eins og það hefur verið. Þar er fyrst til að taka að með blaðinu fylgir sérkafli um hár og förðun. Þar verðum við með umfjöllun um hár og förðun í formi kynninga og auglýsinga frá fagfólki.

23. nóvember gerum við jólafötum góð skil í sérkafla. Þetta er tíminn þegar fólk kaupir jólafötin á sig og litlu krílin. Þarna getum við líka verið með kynningar jafnhliða auglýsingum, eins og í kaflanum um hár og förðun.

Fréttatíminn er áhrifaríkur miðill. Til dæmis lesa blaðið 69% kvenna 25 til 80 ára á höfuðborgarsvæðinu. Til að tryggja þinni auglýsingu góða staðsetningu í sérköflum, hikaðu ekki við að hafa samband við Kristi Jo (kristijo@frettatiminn.is) og hún mun aðstoða þig við að ná til markhópsins með skilvirkum hætti.

Minnum á að Jólablað Fréttatímans 2012 kemur út föstudaginn 30. nóvember. Mikið verður lagt í jólablaðið að þessu sinni og það borgar sig fyrir auglýsendur að vera sýnilegir í blaðinu. Í því verður spennandi, jólatengt efni af ýmsum toga, skrifað af reyndum blaðamanni, en að auki verða í blaðinu vörukynningar í samvinnu við fyrirtæki. Ekki missa af glæsilegu blaði til þess að koma skilaboðum til viðskiptavina þinna meðal ánægðra lesenda Fréttatímans. Auglýsingin mun án efa lifa lengi í jólablaðinu, enda er efnið þannig uppbyggt að fólk geymir blaðið og gluggar í það ítrekað við jólaundirbúninginn. Við bjóðum sanngjarnt verð í blaðið. Hafðu samband við okkur á auglýsingadeild, í síma 531 3310 eða á auglysingar@frettatiminn.is og við gerum þér tilboð. Láttu sjá þig - það borgar sig.


No comments:

Post a Comment