Húðin er okkar stærsta líffæri og því skiptir miklu máli að hugsa og hirða vel um hana. Hvort sem um er að ræða þurra, blandaða eða feita húð þá þarfnast hver tegund mismunandi meðferðar.
Við á Fréttatímanum ætlum að vera með sérkafla þann 26. október um umhirðu húðarinnar, fyrir konur jafnt sem karlmenn. Þetta er því kjörinn staður til að koma þinni auglýsingu eða kynningu á framfæri.
Um 107 þúsund Íslendinga lesa Fréttatímann vikulega og er dreift inn á hvert heimili á höfuðborgarsvæðinu. Sérkaflar Fréttatímans hafa jafnan fengið góðar móttökur hjá auglýsendum og viðbrögð lesenda hafa verið mjög jákvæð.
Gríptu þetta frábæra tækifæri til að koma þinni auglýsingu á framfæri. Til að tryggja þinni auglýsingu staðsetningu í sérkaflann um umhirðu húðar, ekki hika við að hafa samband við Kristi Jo (kristijo@frettatiminn.is) eða Elvu Ýr (elva@frettatiminn.is) og þær munu aðstoða þig við að ná til markhópsins.
No comments:
Post a Comment