Fréttatíminn

Engum háður

Monday, October 8, 2012

Helgarblaðið sem sló í gegn


Fréttatíminn fagnar með um þessar mundir tveggja ára afmæli. Óhætt er að segja að lesendur og auglýsendur hafi frá fyrsta degi tekið blaðinu fagnandi. Upplagið er stórt og blaðið er mikið lesið – og það sem skiptir ekki síður máli – vel lesið og vandlega. Fréttatíminn er helgarblað í orðsins fyllstu merkingu með fjölbreyttu efni, viðamiklum viðtölum, úttektum, fréttum, fréttaskýringum, menningarumfjöllun, meðal annars umfjöllun um bækur, leikhús, kvikmyndir og sjónvarp – og síðast en ekki síst margháttuðu afþreyingarefni. Vel er séð fyrir umfjöllun um helstu þætti í heimilisrekstri, matargerð og heilsu. Önnur grundvallaratriði í heimilisrekstri, til dæmis bílar, eru á sínum stað í blaðinu. Fjölbreytt sérblöð fylgja Fréttatímanum, ýmist unnin á vegum blaðsins eða í umsjá samtaka af ýmsu tagi enda sjá þau sér hag í því að nýta sér öfluga og viðamikla dreifingu þess. Þrautreynd ritstjórn skilar af sér vönduðu en um leið aðgengilegu efni í máli og myndum sem lesendur kunna að meta og söludeild þjónustar auglýsendur vöru og þjónustu sem vita að hið auglýsta kemst til skila.
Mælingar sýna mestan lestur á föstudegi, útkomudegi blaðsins, en einnig að lesendur taka blaðið aftur upp á laugardögum og sunnudögum þegar betra næði gefst frá amstri hvunndagsins. Fréttatíminn er því upplýsinga-, fræðslu- og afþreyingarmiðill en um leið frábær auglýsingamiðill og mikilvægur sem slíkur þegar ná þarf til sem flestra í einu. Þessi slagkraftur er auglýsendum ljós, stórum jafnt sem smáum. Blaðinu er dreift á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Því er líka dreift með samstarfsaðilum um land allt. Um 107 þúsund manns lesa hvert tölublað Fréttatímans, 55 prósent höfuðborgarbúa lesa blaðið og 67 prósent kvenna á aldrinum 25 til 80 ára á því svæði lesa blaðið. Það eru fáir aðrir fjölmiðlar sem geta státað af slíku, að ná til nær sjö af hverum tíu konum á höfuðborgarsvæðinu, frá ungum aldri allt til elliára.
Áhugi kvenna á Fréttatímanum er ekki síst fagnaðarefni. Það er ekki að ástæðulausu enda þarf ekki annað en skoða forsíður blaðsins frá upphafi. Þar hafa konur, á öllum sviðum þjóðlífsins, verið í miklum meirihluta. Það er ekki aðeins tilbreyting frá hefð frétta- og helgarblaða heldur nauðsyn í karllægu samfélagi.
Eignarhald Fréttatímans er uppi á borðinu. Blaðið er í eigu nokkurra starfsmanna en tengist hvorki hagsmuna- né stjórnmálasamtökum og heldur ekki viðskiptasamsteypum. Þetta er mikilvægt að vita í samfélagi sem gengið hefur í gegnum hremmingar og traust hefur beðið hnekki, meðal annars á fjölmiðlum. Það samfélagstraust vinnst ekki á ný nema með vönduðum vinnubrögðum og heilindum á öllum sviðum. Markmið aðstandenda Fréttatímans er að gefa út vandað, skemmtilegt og áreiðanlegt blað sem nær til þorra landsmanna.
Prentmiðillinn stendur því fyrir sínu, þrátt fyrir breytta tíma og tækni netvæðingar, vilji menn ná til sem flestra í senn. Efni Fréttatímans er enn fremur að finna á netinu, www. frettatiminn.is, fyrir þá sem vilja fylgjast með efni blaðsins, en eiga þess ekki kost að lesa pappírsútgáfuna, hvort heldur er í dreifbýli eða utan landsteina.
Undanfarin tvö ár hafa verið ævintýri. Fréttatíminn hefur á þessum árum skotið styrkum rótum. Fyrir góðar móttökur lesenda og auglýsenda þessi fyrstu tvö ár í lífi Fréttatímans er þakkað.
Jónas Haraldsson 

No comments:

Post a Comment