Fréttatíminn verður stútfullur af skemmtilegu efni næsta föstudag. Við höldum áfram að segja baráttusögur Íslendinga eins og við höfum gert undanfarið. Í blaðinu verður einnig sérkafli um garða sem unninn er í samvinnu við Garðyrkjufélag Íslands. Haustverkin í garðinum eru ekki síður mikilvæg en vor- og sumarverkin, nú er til að mynda góður tími til að klippa limgerði og runna og einnig er gott að gróðursetja núna svo nýjar plöntur taki vel við sér þegar vora fer.
Við verðum áfram með sérkafla um heilsu. Heilsuumfjöllun Fréttatímans hefur fengið verðskuldaða athygli undanfarið og laðað að lesendur og ánægða auglýsendur. Enda er heilsa eitt helsta áhugamál landans um þessar mundir. Það eru allir að spá í hvað á að borða og hvar á að æfa.
Í Fréttatímannum verða líka föstu sérkaflanir eins og venjulega um bíla, bækur, bíó, tónlist, leikhús, menningu og dægurmál.
Æ fleiri ánægðir auglýsendur velja að auglýsa í Fréttatímanum um helgar. Hvar er auglýsingin þín?

No comments:
Post a Comment