Á föstudag kemur 100. tölublað Fréttatímans
út en í október á blaðið tveggja ára afmæli. Lesendur hafa frá upphafi tekið
Fréttatímanum fagnandi en vikulega lesa 107 þúsund Íslendingar Fréttatímann.
Það eru bjartir tímar framundan á
Fréttatímanum og við erum ánægð að kynna til sögunnar nýjan ritstjóra blaðsins,
Mikael Torfason, sem mun ritstýra blaðinu ásamt Jónasi Haraldssyni. Báðir hafa
þeir áratuga reynslu af fjölmiðlum, Jónas yfir 35 ára reynslu en Mikael hefur
verið kraftmikill blaðamaður á Íslandi síðustu 16 ár. Hann hóf fyrst störf á
Dagblaðinu Vísi og varð ungur ristjóri fylgiritsins Fókus. Þá var hann einnig
fréttastjóri innblaðs á Fréttablaðinu, ritstjóri DV, aðalritstjóri Fróða og
Birtíngs auk þess sem Mikael hefur gefið út fjölda skáldverka og verið áberandi
þáttakandi í þjóðmálaumræðunni.
Um leið og Mikael tekur við
ritstjórastarfinu mun Valdimar Birgisson, auglýsingastjóri Fréttatímans, taka
við framkvæmdastjórastarfinu af Teiti Jónassyni sem verður þó áfram útgefandi
blaðsins og útgáfustjóri. Breytingarnar eru liður í endurskiplagningu en áfram
verður óbreytt eignarhald á blaðinu.

Gleðst alltaf yfir því að blöð og aðrir fjölmiðlar haldi lífi. Sama hvaðan gott kemur. Óska því Mikael Torfasyni til hamingju með ritstjórastöðuna -þó að vissulega væri æskilegt að fleiri prentmiðlar á Íslandi kæmu út á eigin forsendum. DV er eiginlega sá eini í dag sem það gerir. Þó að Mbl. eigi að heita áskriftarblað enn í dag er því haldið uppi af fjármagni sem DV hefur ekki aðgang að. Kannski sem betur fer...
ReplyDelete