Í næstu viku fylgir Fréttatímanum skemmtilegt sérblað um hjólreiðar sem Einar Bárðarson ritstýrir.
Meðal efnis er viðtal Skúla Mogensen fjárfesti sem er með hjóladellu á háu stigi. Flugfélagið hans WOWair stóð í sumar fyrir nýstárlegri keppni í sumar þar sem nokkur ofurmenni hjóluðu hringinn í kringum Ísland.
Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi, Hörður Arnarsson forstjóri Landsvirkjunar, Alma María Rögnvaldsdóttir íþróttakona, Dr. Gunni tónlistarmógúll, Rikka sjónvarskokkur og fleiri nafntogaðir Íslendingar segja frá hjólunum sínum og skemmtilegum hjólaleiðum.
Einnig verða nokkur verðmæt ráð um val á hjólum og öryggisbúnaði og ýmislegt gagnlegt fyrir þá sem langar að byrja að stunda þessa vaxandi íþrótt.
Hafið samband við auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3310 eða á auglysingar@frettatiminn.is og við aðstoðum þig.

No comments:
Post a Comment