Fréttatíminn
Engum háður
Friday, August 17, 2012
100 tölublað Fréttatímans 24. ágúst
Á föstudaginn 24. ágúst kemur út 100. tölublað Fréttatímans! Blaðið hefur núna komið út í nærri tvö ár – 1. tölublað leit dagsins ljós 1. október 2010. Óhætt er að segja að lesendur, og ekki síður auglýsendur, hafi tekið Fréttatímanum fagnandi. Við sem stöndum að útgáfunni þökkum stuðninginn einlæglega; Fréttatíminn er á góðri siglingu og munum við eftir sem áður gera okkar besta til að koma út vönduðu og skemmtilegu blaði. Þannig skapast bestur vettvangur fyrir auglýsendur.
Í upphafi settum við okkur það markmið að gefa út blað sem væri áhugavert og óháð hugsanlegum valdablokkum. Þessi markmið hafa náðst. Mælingar sýna að lesendur kunna vel að meta blaðið -Fréttatíminn er lesinn af 63% höfuðborgarbúa á aldrinum 25-80 ára. Blaðið stendur undir nafni sem helgarblað; ekki aðeins lesið á föstudögum, þegar það kemur út, heldur staðfesta mælingar að það er lesið jafnt yfir helgina, sem svo tryggir lengri líftíma auglýsinga. Fréttatíminn er í hverri viku lesinn af tæplega 107 þúsund lesendum sem, til að setja það í samhengi, eru talsvert fleiri en horfa að jafnaði á vinsælasta dagskrárlið vikunnar í sjónvarpi.
Með blaðinu á föstudaginn næsta fylgir veglegt sérblað helgað námi og námskeiðum. Þar verða kynnt þau námskeið sem hefjast á haustmánuðum og hvað skólar og fyrirtæki bjóða fróðleiksfúsum Íslendingum slíkan kost.
Sérkaflar og blöð Fréttatímans eru vönduð og uppsetning þeirra miðast við að grípa athygli lesenda og koma um leið á framfæri gagnlegum upplýsingum. Við leggjum okkur fram um að finna þá leið sem hentar hverjum og einum auglýsanda við að koma sinni þjónustu á framfæri; panta má auglýsingu, kynningu – nú eða auglýsingu og kynningu.
Sérblöð Fréttatímans sem helguð eru námskeiðahaldi hafa jafnan fengið góðar móttökur, bæði meðal auglýsenda sem almennra lesenda sem hafa getað sótt sér þangað gagnlegar upplýsingar. Nú í haust stendur til að gera enn betur. Ekki missa af tækifærinu, að vera með og koma á framfæri þinni vöru og þinni þjónustu við þann hóp sem hefur af sérblaðinu því gagn og gaman!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

No comments:
Post a Comment