Samkvæmt mælingum Capacent á lestri prentmiðla eykst lestur á Fréttatímann undanfarna þrjá mánuði samanborið við lestur á blaðinu þrjá fyrstu mánuði ársins. Á sama tíma fækkar lesendum helstu keppinauta. Mælingar sýna einnig að lestur blaðsins dreifist jafnt yfir helgina og stendur Fréttatíminn þannig undir nafni sem helgarblað. Ennfremur; kannanir hafa leitt í ljós að fólki líkar blaðið afar vel.
Að þessu samanlögðu – mikill lestur, vinsældir og góð dreifing – ætti að vera óhætt að fullyrða að Fréttatíminn er ákjósanlegur auglýsingamiðill og réttur staður fyrir auglýsinguna þína.
Í næsta Fréttatíma verður sérstök umfjöllun um veiði/golf, bíla, mat, sumarkjóla og tísku. Við bjóðum uppá sanngjarnt verð.
Þá má minna sérstaklega á það að í blaðinu 27. júlí verður sérkafli um útihátíðir og 24. ágúst verður vandað sérblað um nám.
Sérkaflar í næstu blöðum eru af margvíslegum toga, meðal annars: Útilegumatur, bílar, staðalbúnaður á útihátíðna, Gay Pride-hátíðin, skólaföt, fartölvur, skotveiði, skóladót, menningarnótt, námskeið, heilsa, ljósanótt, heimili... Þeir sem vilja ná til þeirra fjölmörgu sem hafa áhuga á því sem hér er nefnt með vöru sína og þjónustu ættu að hafa samband viðauglýsingadeild Fréttatímans sem má gera með að hringja í 531 3310 eða senda póst á auglysingar@frettatiminn.is
No comments:
Post a Comment