Föstudaginn 24. ágúst verður í Fréttatímanum sérblað sem fjallar um nám og námskeið. Þar verða kynnt þau námskeið sem hefjast á haustmánuðum og hvað skólar og fyrirtæki bjóða upp á slíkt fyrir fróðleiksfúsa Íslendinga.
Sérkaflar og blöð Fréttatímans eru vönduð og uppsetning þeirra miðast við að ná hámarksathygli lesenda og koma á framfæri gagnlegum upplýsingum. Við leggjum okkur fram um að finna þá leið sem hentar hverjum og einum auglýsanda við að koma sinni þjónustu á framfæri; panta má auglýsingu, kynningu – nú eða auglýsingu og kynningu.
Sérblöð Fréttatímans um námskeið hafa jafnan fengið góðar móttökur bæði hjá auglýsendum og viðbrögð lesenda hafa verið frábær. Nú í haust ætlum við að gera enn betur. Ekki missa af þessu tækifæri á því að ná í viðskiptavini.
.jpg)
Til þess er málið varðar.
ReplyDeleteEr of seint að koma grein í blaðið um nám? Ef svo er ekki hefðum við áhuga á að kynna starfsemi okkar byggða á eftirfarandi texta:
Nemendaþjónusta í 24 ár
Skóli Nemendaþjónustunnar er nú að hefja 24. starfsár sitt. Á þeim tíma hefur hann veitt um 20.000 grunn-, framhalds- og háskólanemum aðstoð við skólanám.
Einnig er boðið upp á greiningu á námserfiðleikum svo sem dyslexíu, námsráðgjöf og námsmat. Skólinn er til húsa í Álfabakka 12 í Mjóddinni.
Námsaðstoð við skólanema
Fræðsludeildin veitir skólanemum aðstoð við nám í flestum þeim námsgreinum sem kenndar eru í almennum skólum. Um þessar geta nemendur fengið upprifjun fyrir samræmdu prófin í 4., 7. og 10. bekk grunnskóla sem haldin verða í september.Hægt er að innrita sig í síma 557 9233 eða á vef skólans namsadstod.is.
Mikilvægur hluti kennslunnar er aðstoð við nemendur með dyslexíu og sértæka námserfiðleika. Kennt er á stuttum (6 kennslustunda) námskeiðum og/eða misserisnámskeiðum. Stuttu námskeiðin eru ætluð þeim sem eiga við afmarkaða erfiðleika að etja í námi. Misserisnámskeiðin eru hins vegar ætluð þeim sem þurfa að byggja upp grunn í viðkomandi námsgrein og þurfa til þess töluverðan tíma.
Auk almennrar yfirferðar á námsefni er bæði á stuttum og misserisnámskeiðum veitt aðstoð í því námsefni sem verið er að fara yfir í skóla nemandans hverju sinni. Kennararnir meta námsþarfirnar og hvers konar kennsla henti nemandanum best. Símati er beitt í kennslunni til að meta framfarir og byggist framvindan í náminu á því.
Við höfum frá upphafi lagt áherslu á einstaklingsmiðað nám samkvæmt atferliskenningum og vegna þess er kennslan hnitmiðuð með mikilli áherslu á sérþarfir hvers nemanda. Þetta hjálpar nemendum að vinna upp margra ára námsefni. Farið er í gegnum próftöku til að draga úr áhrifum prófgerðarinnar á próftökuna. Sífellt fleiri nýta sér þjónustu okkar til að halda utan um nám barna sinna til að fyrirbyggja námserfiðleika í framtíðinni. Kennararnir gjörþekkja námsefnið í almenna skólakerfinu og hjá okkur starfa kennarar sem kennt hafa bekkjum í almenna skólakerfinu og náð þar mjög góðum árangri með nemendur á samræmdum prófum.
Nemendur koma ýmist að eigin frumkvæði eða eftir ábendingum frá skólum. Fræðsludeildin sér einnig um fullorðinsfræðslu fyrir fólk sem er ekki í almenna skólakerfinu en vill rifja upp fyrri kunnáttu sína í tilteknum námsgreinum sér til ánægju og/eða með frekara nám í huga. Starfsmenntunarsjóðir ýmissa fagfélaga styrkja nám þeirra aðildarfélaga sinna sem njóta fullorðinsfræðslu skólans. Auk þess veitum við fólki sem dvelur á sjúkrahúsum eða heima hjá sér vegna veikinda og getur ekki sótt skóla aðstoð við að halda utan um nám sitt.
Nemendur sem koma erlendis frá
Meðal nemenda skólans frá upphafi hafa verið grunn- og framhaldsskólanemendur sem nýfluttir eru til landsins eftir lengri eða skemmri dvöl erlendis.
Lögð er sérstök áhersla á að sinna námsþörfum þessara einstaklinga. Auk aðstoðar við 10. bekkinga má nefna kennslu í ýmsum greinum fyrir nemendur sem komu úr erlendum skólum og hefja nám í grunnskóla nú í haust. Í upphafi námskeiðs er framkvæmd greining á stöðu nemandans með tilliti til væntanlegs náms hans í íslenskum skóla. Í þeirri greiningu felst meðal annars mat á því hverju hann hefur þegar lokið af því námsefni sem hann kemur til með að læra í íslenska skólanum og hvar hann þarf að bæta við kunnáttu sína til að geta komist á eðlilegt ról í nýja skólanum.
Sumir nemendur sem komið hafa erlendis frá hafa átt í nokkrum erfiðleikum með að komast inn í íslenska námsefnið nógu fljótt. Þeir hafa því leitað aðstoðar skólans eftir að þeir eru byrjaðir í síðasta bekk grunnskóla hér og hefur það reynst mörgum aukaálag sem þeir eiga erfitt með að standa undir.
Við leggjum því áherslu á að nemendur hugi að stöðu sinni strax og þeir koma til landsins en geymi það ekki. Kennslan fer fram í Álfabakka 12 í Reykjavík. Einnig eru sérhönnuð námskeið haldin í fyrirtækjum og opinberum stofnunum eftir pöntun þeirra.
Nemendaþjónustan www.namsadstod.is
s. 557 9233
Með fyrirfram þökk,
Hallur Skúlason, skólastjóri
Ég gleymdi að láta netfangið fylgja bréfinu hér á undan. Það er: namsadstod@excite.com
ReplyDeleteKveðja,
Hallur Skúlason, skólastjóri
Nemendaþjónustan