Fréttatíminn

Engum háður

Monday, June 18, 2012

Sól blóm og sumar í Fréttatímanum

Með næsta Fréttatíma fylgir blað um garða og gróður. Þetta blað er helgað garðyrkju- og blómasýningunni „Blóm í bæ“ sem verður haldin í fjórða sinn næstu helgi í Hveragerði. Fyrri sýningar hafa notið mikillar hylli og fjöldi gesta sótt hátíðina heim og notið þess sem í boði var. 

Við höldum áfram umfjöllun um EM eins og við höfum gert frá því í febrúar. Umfjöllun um bíla verður á sínum stað eins og undanfarnar vikur og gerum við veiði jafnframt góð skil í skemmtilegum sérkafla um veiði.  Á föstudaginn verðum við líka með fyrsta sérkaflann um golf. Ennfremur verðum við með síðu í blaðinu þar sem við teljum upp hlutina sem þú þarft í útileguna.  

Föstu kaflarnir verða á sínum stað, umræðan (viðskipti), bækur, bíó, menning, dægradvöl, afþreying, tíska og dagskrá.

Við getum því boðið réttu staðsetninguna fyrir auglýsinguna þína. Við höfum vissulega markhópinn þannig að þú þarft ekki að flækja þetta, Fréttatíminn er rétti staðurinn fyrir auglýsinguna þína.

No comments:

Post a Comment