Fréttatíminn

Engum háður

Monday, June 25, 2012

Góður Fréttatími á föstudaginn

Það er von á góðum Fréttatíma á næsta föstudag. Við munum fylgja eftir frétt um konuna sem ólétt er af fimburum, það hefur ekki gerst áður á Íslandi. 


Við verðum líka með sérblað um ferðalög. Núna er tími ferðalaga og ef þú ert með auglýsingu eða áhugavert efni þá endilega vertu í sambandi við okkur með það. Við munum setja þetta blað upp svipað því sem að við höfum áður gert og munu auglýsendur geta valið um hvort að þeir birtist aðeins í hefðbundnum auglýsingum, í sérmerktum auglýsingakynningum þar sem að er þá hægt að fara ítarlegar í efnið eða í blöndu af hvoru tveggja.


Þá verða áfram kaflar um bíla og veiði eins og við höfum verið með í undanförnum blöðum. Þá höldum við áfram að fara á golfvelli landsins og skoða sveifluna í sérkafla um golf. Lokakaflinn á EM er að hefjast og munum við fjalla ítarlega um liðin sem mætast í úrslitaleiknum 1. júlí. Tíska, bækur, bíó og afþreying verðu svo á sínum stað.

No comments:

Post a Comment