Fréttatíminn

Engum háður

Monday, June 4, 2012

Fjölbreyttur Fréttatími 8. júní


Fréttatíminn 8. júní verður fjölbreyttur að vanda og stútfullur af skemmtulegu efni.  Þar verður afar athyglisvert og dramatískt viðtal sem Anna Kristine tók við einn eftirlifanda fjöldamorðanna í Útey.  Í blaðinu verður líka sérblað um EM í fótbolta sem er að hefjast á föstudaginn.  Við höfum verið að telja niður að mótinu í allan vetur og hefur Óskar Hrafn fótboltasérfræðingur farið á kostum á EM síðum Fréttatímans.

Sumarið er komið og golfboltinn farinn að rúlla um flatirnar. Umfjöllun Fréttatímans um þessa skemmtilegu íþrótt byrjar í næsta blaði. Meðal annars verður fjallað um heimsókn á golfvöllinn í Borgarnesi og það frábæra starf sem þar er unnið skoðað.

Við verðum líka með umfjöllun um bækur, bíó og tísku að venju.  Að auki verðum við með sérkafla um heilsu eins og oft áður í vetur.  Þá höldum við áfram umfjöllun um veiði eins og við höfum gert undanfarnar vikur.  Í þetta skipti verður athyglisvert viðtal við veiðikonu. Þá verður kafli um bíla í blaðinu en þar ættu fjölmargir áhugamenn um bíla og þeir sem eru að huga að bílakaupum að finna eitthvað við sitt hæfi.

Við fögnum líka sumri með sérkafla sem við köllum einfaldlega Borðað úti.  Þar fjöllum við um grillið, garðhúsgögnin, matinn, drykkina og bara allt það sem tengist sumri og mat.  Það verður fjör í Fréttatímanum í sumar.

No comments:

Post a Comment