Það mun sjást vel á í Fréttatímanum þann 1. júní að sumarið er komið því í næsta tölublaði verðu fjallað um veiði í blaðinu og einnig verður sérkafli sem við kjósum að kalla úti að borða (undir berum himni). Þar fjöllum við um sumarstemminguna, grillið, garðhúsgögnin og matinn að sjálfsögðu.
Við verðum að vanda með spennandi blað og fjöllum um bækur og bíó eins og við gerum alltaf. Það verður líka sérkafli um heilsu en hann er að verða fastur liður í Fréttatímanum. Það kemur ekki á óvart þar sem það má segja að heilsubylgja gangi yfir landið.
Við erum í sumarskapi á Fréttatímanum, vertu með.

No comments:
Post a Comment