Fréttatíminn

Engum háður

Friday, May 4, 2012

Prjónabylgja gengur yfir Ísland


Það hefur vart farið fram hjá nokkrum að áhugi á prjónaskap og öðrum hannyrðum hefur aukist til muna á Íslandi undanfarin misseri. Þeir sem prjóna eru sýnilegri en áður, það þykir ekki lengur merkilegt að sjá einhvern taka upp prjóna á kaffihúsi eða fundi. Sérstök prjónakaffi eru haldin víða í kaffihúsum, garnverslunum, samkomuhúsum og ekki síst í heimahúsum. Þessi félagslegi þáttur hefur svo haft áhrif á útbreiðsluna því það getur verið smitandi að sjá aðra prjóna og þannig breiðist prjónmenningin út hraðar en ella.

Á næstu vikum mun í Fréttatímanum birtast nokkrar greinar um prjón og það er aldrei að vita nema að inn á milli slæðist ein og ein uppskrift.

Guðrún Hannele Henttinen mun hafa umsjón með prjónakaflanum.

No comments:

Post a Comment