![]() |
| Grillað á góðum degi |
Í næsta Fréttatíma, 11. maí, verðum við með sérblað um grill og mat. Umfjöllunarefni blaðsins verður fjölbreytt en meðal efnis er hvað gera á við súrar gúrkur, við stingum upp á nokkrum sumarsalötum, bernaise sósan verður krufin og grillið verður að sjálfsögðu á sínum stað. Aðalefnið er svo BBQ svínaöxl.
Þetta verður glæsilegt blað sem Hari stýrir af sinn alkunnu list. Hari gaf út blað um mat, Matargatið við góðar undirtektir fyrir nokkrum misserum. Það er að koma sumar og ef eitthvað er til vitnis um það þá er það ilmurinn af kjöti sem verið er að grilla og leggur um borg og bæi.
Ef þú ert með grill eða grilláhöld, mat eða drykk eða fylgihluti, átt þú heima með upplýsingar um þína vöru í þessu blaði.

No comments:
Post a Comment