![]() |
| Fjölbreyttir sérkaflar eru í Fréttatímanum |
Í næsta blaði höldum við áfram að fjalla um EM eins og við höfum gert í undanförnum blöðum. Það styttist í þessa risa fótboltakeppni sem að þessu sinni er haldin í Póllandi, 8. júní. EM í fótbolta er einn stærsti íþróttaviðburður sem í boði er og þessi umfjöllun okkar er vel lesin af áhugafólki um fótbolta.
Þá verður líka sérkafli um Eurovision framarlega í blaðinu. Áhugi á Eurovision meðal Íslendingar er gríðarlegur og það er eins víst að þessi kafli verði lesinn upp til agna á laugardaginn. Hvort sem Greta og Jónsi komist áfram eða ekki þá er nokkuð víst að Eurovision mun fanga athygli okkar á laugardaginn.
Í aftari hluta blaðsins verður umfjöllun um bækur, tísku, heilsu og bíó eins og vanalega og við höldum áfram að skrifa um veiði sem við hófum í síðasta blaði. Við hefjum líka í næsta blaði umfjöllun um bíla í sérkafla.
Með auglýsingu í Fréttatímanum nærð þú í stóran hluta af markhópnum þínum. 67% kvenna 25+ á höfuðborgarsvæðinu segjast lesa blaðið svo dæmi sé tekið. Þú getur líka staðsett auglýsinguna í sérköflum og þar með náð betur í markhópinn.

No comments:
Post a Comment