Fréttatíminn
Engum háður
Monday, April 23, 2012
Sterk staða Fréttatímans
Capacent birti í síðustu viku niðurstöður mælinga á lestri dagblaða fyrstu þrjá mánuði ársins 2012. Þessar niðurstöður staðfesta sterka stöðu Fréttatímans meðal fólks á höfuðborgarsvæðinu. Þannig lesa eða fletta 67% kvenna á aldrinum 25 til 80 ára á því svæði blaðinu. 68% 30 til 59 ára kvenna á höfuðborgarsvæðinu fletta blaðinu eða lesa. Þessi hópur, 30 til 59 ára konur á höfuðborgarsvæðinu er líklega verðmætasti neysluhópurinn á Íslandi í dag.
Í þessari könnun Capacent er ekki aðeins spurt um lestur á dagblöðum heldur er einnig spurt, last þú eða flettir viðkomandi blaði. Þannig er ekki gerður greinamunur á flettingu og lestri í þessum mælingum.
Fréttablaðið er meira lesið en Fréttatíminn meðal höfuðborgarbúa að jafnaði. Hins vegar er munurinn á lestri á föstudögum meðal eldri markhópa ekki svo mikill og sumstaðar hefur Fréttatíminn vinninginn og er það dæmi um þá sókn sem Fréttatíminn er í. Þannig eru fleiri 67 ára og eldri sem lesa Fréttatímann en Fréttablaðið á föstudögum. Það munar þarna um aðeins 3 prósentustigum sem Fréttatíminn er lesinn meira en Fréttablaðið. Munurinn á lestri þeirra sem eru 50 ára og eldri er einungis 5 prósentustig Fréttablaðinu í vil og 6 prósentustig meðal 35 ára og eldri. Fréttatíminn er samt sem áður lesinn meira en Fréttablaðið í fleiri markhópum en þessum sem hér voru nefndir. Þannig er lestur á blaðið mjög góður ef skoðaður er lestur í eldri hverfum Reykjavíkur.
55% höfuðborgarbúa lesa Fréttatímann að jafnaði. Það fer því saman að dreifing er góð og áhugi á blaðinu er að aukast. Ef síðan er skoðað er það verð sem við erum að bjóða og borið saman við verð sem keppinautar bjóða er augljóst hvar auglýsingin fyrir næstu helgi ætti að birtast: í Fréttatímanum.
Lesendur hafa líka tekið blaðinu einstaklega vel. Kannanir okkar sýna að blaðið er lesið jafnt um helgar. Þannig er lesturinn svipaður á föstudögum og laugardögum og nokkur lestur á sunnudögum. Blaðið er s.s. lesið frá fimmtudagskvöldi og fram á mánudag.
Kannanir sýna líka að fólki líkar blaðið. 80 til 85 prósent líkar vel eða mjög vel við blaðið og innan við 2% illa eða mjög illa við það.
Fréttatíminn er aðgengilegur fyrir fólk um allt land og er ókeypis um land allt.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment