Fréttatíminn

Engum háður

Friday, April 20, 2012

Fréttatíminn - fjölbreyttur og stútfullur af efni

Næsti Fréttatími verður fjölbreyttur og stútfullur af fróðlegu og skemmtilegu efni.  Við verðum með nokkra sérkafla í blaðinu. Fyrst ber að nefna að fjallað verður um skóla og námskeið í blaðinu. Þá verður kafli sem helgaður er ferðalögum og við gerum heilsunni góð skil í sérkafla. Við verðum með heilsukafla reglulega í hverju blaði ef þess er kostur hér eftir. Enda er heilsa það efni sem nýtur einna mestu vinsælda um þessar mundir. Húshornið er líka á sínum stað en þar svara sérfræðingar Húseigendafélagsins, Samtökum Iðnaðarins og Nýsköpunarsjóði spurningum lesenda um allt er varðar húseignir.

Kannanir staðfesta góðan lestur Fréttatímans og lesa 64% höfuðborgarbúa á aldrinum 25 til 80 ára blaðið.  Munurinn á Fréttatímanum og Fréttablaðinu er ekki svo mikill þegar neysluhópar eru bornir saman. Það, ásamt hagstæðu verði, gerir Fréttatímann að ákjósanlegum auglýsingamiðli fyrir þig.

No comments:

Post a Comment