Föstudaginn 20. apríl dreifum við blaðinu Garðar með Fréttatímanum. Blaðið fjallar eins og nafnið bendir til um garða og garðyrkju. Garðar er unnið í samvinnu við Garðyrkjufélag Íslands og sjá þeir um skrif í blaðið að mestu. Við munum einnig vera með sérkafla í Fréttatímanum sumar þar sem þessu efni verður gert skil og verður það líka unnið í samvinnu við Garðyrkjufélag Íslands. Þar verður fjallað um allt sem viðkemur garðinum hvort sem það eru blómin og gróðurinn, flötin og slátturinn eða pallar og garðhúsgögn.
Sérblöð Fréttatímans eru vönduð og auglýsingar í þeim skila auglýsendum árangri enda er Fréttatíminn lesinn um helgar en ekki bara flett við morgunverðarborðið.
Ef þú hefur áhuga á að koma að efni eða auglýsingu í blaðið snúðu þér til auglýsingadeildar Fréttatímans. Síminn er 531 3310 eða sendu okkur póst á auglysingar@frettatiminn.is

No comments:
Post a Comment