Fréttatíminn

Engum háður

Friday, February 3, 2012

Febrúar - Fermingarundirbúningur, heilsa og 50+

Fermingar
Í næsta Fréttatíma, föstudaginn 10. febrúar, fjöllum við um mat og heilsu. Í sérkafla um mat leggjum við áherslu á veisluna. Það styttist í fermingarveislurnar og eflaust margir foreldrar fermingarbarna að skipuleggja þær um þessar mundir. Föstudaginn 17. febrúar verðum við með sérkafla um tísku, sérstaklega um fermingarfötin. Við erum því farin að huga að fermingarundirbúningnum.

Heilsa
Í blaðinu 10. febrúar verður jafnframt sérakafli um heilsu. Sífellt fleiri eru meðvitaðir um heilsu sína og er óhætt að segja að heilsubylting gangi nú yfir. Heilsukafli Fréttatímans er því ákjósanlegur staður til þess að koma upplýsingum til viðskiptavina þinna og ná í nýja. Ef þú hefur efni sem þú vilt koma á framfæri eða ef þú vilt auglýsa þá hikaðu ekki við að hafa samband við auglýsingadeild Fréttatímans.

50+
Eldra fólk er að verða verðmætari markhópur nú en áður. Markaðssérfræðingar hafa hingað til gert lítið úr mikilvægi þessa hóps en nú eru sjáanlegar breytingar. Fyrir því eru tvær ástæður. Í fyrsta lagi fer þessi hópur stækkandi og í öðru lagi hefur hann meiri fjárráð nú en áður, jafnvel meiri en yngri hópar. Það er því eftir töluverðu að slægjast að ná til þessa hóps. 75% fólks 50 ára til 80 ára á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann. Þú nærð því til þeirra með auglýsingu í Fréttatímanum.

No comments:

Post a Comment