Fréttatíminn

Engum háður

Friday, January 13, 2012

Vetrarfjör - Sérblað um vetraríþróttir 27. Janúar

Í Fréttatímanum 27. Janúar fylgir veglegt sérblað um Vetraríþróttir. Í blaðinu verður fjallað um vetraríþróttir á Íslandi, skíði, vélsleða, skauta og aðrar íþróttir sem stundaðar eru útivið um vetur. Þetta er blaðið sem þú ættir að vera með auglýsingu í ef þú ert að bjóða vörur eða þjónustu sem tengjast vetraríþróttum.

Á síðustu þremur mánuðum síðasta árs var Fréttatíminn lesin af 67 % kvenna 25 til 80 ára á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er talsverð aukning en þrjá mánuði þar á undan var lesturinn 61% í sama markhópi. 66% kvenna 30 til 55 ára á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann, þetta er líklega verðmætasti neysluhópurinn. Í sumum markhópum er Fréttatíminn meira lesinn en Fréttablaðið.

55% höfuðborgarbúa lesa blaðið að jafnaði sem er líka talsverð aukning frá síðust könnun. Það fer því saman að dreifing er góð og áhugi á blaðinu eykst. Áður hefur komið fram að fólki líkar vel við blaðið og það er lesið um helgar en ekki bara flett við morgunverðarborðið. Auglýsingu þinni er því vel borgið í Fréttatímanum.

Upplýsingar í síma 531 3310 eða auglysingar@frettatiminn.is

No comments:

Post a Comment