Í næsta blaði Fréttatímans skrifar vöruhönnuðurinn Sigga Heimis um hönnun í sérstakri umfjöllun um heimilið. Sigga Heimis lærði hönnun á Ítalíu, hefur starfað við fag sitt víðs vegar um heiminn og hefur um árabil verið einn þekktasti hönnuður landsins. Sigga Heimis skapaði sér meðal annars nafn er hún starfaði sem hönnuður hjá IKEA í um 7 ár. Árið 2008 var Sigga síðan ráðin hönnunarstjóri hjá hinum virta danska húsgagnaframleiðanda, Fritz Hansen og hefur hún að auki starfað með fjöldra erlendra háskóla og til að mynda unnið verkefni fyrir Vitra hönnunarsafnið í Þýskalandi og Corning glerlistasafnið í New York. Sigga Heimis er nú búsett og starfandi á Íslandi og rekur eigin hönnunarstofu.
Í blaðinu 10. febrúar verður sérkafli um veislumatinn, með áherslu á fermingarveisluna. Í sama blaði fjöllum við líka um heilsu eins og við höfum gert oft áður.
Við minnum á að 67% kvenna 25 til 80 ára á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann, þetta er verðmætasti markhópurinn að áliti margra. Konur eru jú innkaupastjórar heimilanna.

No comments:
Post a Comment