Nú er jóla undirbúningurinn að komast í hámark og verslunin líka. Í Fréttatímanum 16. desember höldum við því áfram að fylgja Íslendingum við undirbúning fyrir jólin eins og við höfum gert í síðustu blöðum. Við ætlum að fjalla um mat, bækur og jólaskreytingar í blaðinu.
Í blaðinu 23. desember verður svo að sjálfsögðu hátíðarstemming í blaðinu og í blaðinu 30 desember gerum við upp árið.
Það er því mikið um að vera í næstu blöðum eins og vera ber og blöðin því eflaust lesin upp til agna.
Í fyrsta blaðinu eftir áramótin verðum við með sérblað um Heilsu. Þar fjöllum við um heilsuna í víðum skilningi, eins og svo sem hreyfingu, mataræði, rækt við andann og heilsuvörur alls kyns. Þá er tíminn til þess að mæta þörfum landans sem setti sér áramótaheit og stefnir staðfastur að því að efna þau. Þannig að hvort sem þú ert að auglýsa námskeið, heilun, heilsuvörur eða líkamsrækt þá áttu heima með auglýsingu í þessu blaði.

No comments:
Post a Comment