Föstudaginn 11. nóvember næstkomandi fjöllum við um mat og barnaföt í Fréttatímanum. Í næsta blaði þar á eftir, blaðinu 18 nóvember, fjöllum við um heilsusamlegan lífstíl í heilsublaði sem fylgir Fréttatímanum og við fjöllum um bækur í sérkafla í því blaði. Við getum aðstoðað þig við að ná í fleiri viðskiptavini með auglýsingu eða kynningu í sérblöðum og sérköflum í Fréttatímanum. Það eru bæði hefðbundnar auglýsingar og kynningar í sérblöðum Fréttatímans. Auglýsendur geta þannig valið hvernig þeir vilja kynna starfsemi sína, með kynningu eða auglýsingu eða jafnvel með blöndu af báðu.
Kynningarnar er að sjálfsögðu kyrfilega merktar sem slíkar. Fréttatíminn er lesinn af tæplega 60% höfuðborgarbúa á aldrinum 25-80 ára. Auglýsingu þinni er því vel borgið í blaði sem er vandað, mikið lesið og vel liðið af lesendum.
Við minnum einnig á að panta auglýsingapláss fyrir jólin, nú þegar eru nokkrar staðsetningar fullbókaðar fram að áramótum.
Jólablaðið kemur út 25. nóvember.

No comments:
Post a Comment