„Fréttatíminn er í hverri viku lesinn af tæplega 100 þúsund lesendum sem er álíka mikill fjöldi og horfir að jafnaði á vinsælasta dagskrárlið vikunnar í sjónvarpi. Þegar við fórum af stað sögðumst við vilja vera blað fólksins. Þessar móttökur, sem við erum mjög þakklát fyrir, sýna okkur að við erum á réttri leið,“ segir Jón Kaldal, ritstjóri Fréttatímans, en blaðið er árs gamalt; fyrsta tölublað þess kom út 1. október 2010. Lesendur og auglýsendur hafa tekið Fréttatímanum fagnandi þetta fyrsta starfsár.
„Fyrir ári settum við okkur það markmið að gefa út blað sem væri áhugavert og óháð valdablokkum – og að Fréttatíminn væri góður kostur auglýsenda og skilaði þeim árangri,“ segir Valdimar Birgisson auglýsingastjóri. „Þessi markmið hafa náðst. Mælingar sýna að lesendum líkar blaðið því Fréttatíminn er lesinn af 62% höfuðborgarbúa á aldrinum 25-80 ára. Blaðið stendur undir nafni sem helgarblað. Það er ekki aðeins lesið á föstudögum heldur sýna mælingar að það er lesið jafnt yfir helgina. Blaðið skilar auglýsendum því árangri og við erum þakklát fyrir móttökur lesenda og auglýsenda. Fram undan eru spennandi tímar þar sem við munum halda áfram að þjónusta auglýsendur og stuðla að samkeppni á auglýsingamarkaði,“ segir Valdimar.
Teitur Jónasson, framkvæmdastjóri Morgundags, útgáfuféflags Fréttatímans, segir rekstur blaðsins þetta fyrsta ár hafa gengið vonum framar. Allar áætlanir hafi staðist. „Við vorum viss um það, þegar við fórum af stað í fyrra, að rík þörf væri fyrir nýtt helgarblað í frídreifingu og viðtökur lesenda, og ekki síður uglýsenda, hafa sýnt að við höfðum rétt fyrir okkur. Með tilkomu Fréttatímans hefur fjölbreytni á auglýsingamarkaði aukist, sem er allra hagur. Við erum rétt að byrja og ætlum okkur miklu meira.
“
No comments:
Post a Comment