Fréttatíminn

Engum háður

Sunday, July 17, 2011

Fréttatíminn með sterka stöðu

Capacent birti nýverið mælingu á lestri og flettingum á dagblöðum frá apríl til júní. Niðurstaðan er nánast sú sama og hún var í síðustu mælingu. Fréttablaðið bætir þó ögn við sig.

Fréttatíminn mælist með 62% lestur/flettingu í hópnum 25 til 80 ára á höfuðborgarsvæðinu en var með 63% í síðustu mælingu. Áfram er meiri lestur á Fréttatímann vestan Elliðaár, í gömlu hverfum borgarinnar. Þar mælist lestur og flettingar 64,4% Til samanburðar er helgarblað Fréttablaðsins með 77,5 % í sama aldurshópi á Höfuðborgarsvæðinu en 70,9% í áðurnefndum hverfum, munurinn er s.s. 6,5 prósentustig. Áhugi á Fréttablaðinu minkar s.s. eftir því sem vestar dregur í borginni.

Fréttatíminn hefur komið út í rúma níu mánuði og gengur vel. Við erum stolt yfir því að hafa náð þessum árangri og þakklát þeim sem hafa stuðlað að honum með því að lesa blaðið eða auglýsa í því. Þetta hefur gengið vegna þess að fólki líkar blaðið og það skilar auglýsendum árangri.

Fréttatíminn er eins og kunnugt er í eigu nokkurra starfsmanna blaðsins. Við teljum það að afar mikilvægt að hér á landi séu fjölmiðlar sem eru óháðir líkt og Fréttatíminn er. Fjölmiðlar sem fólk geti treyst að séu ekki að gæta hagsmuna eigenda sinna. Það er líka til hagsbóta fyrir auglýsendur að það ríki samkeppni á fjölmiðlamarkaði eins og á öðrum mörkuðum.

No comments:

Post a Comment