Tímaritið Stoppað í matargatið kemur út eftir árs hlé nú í lok júní. Blaðið er, eins og margir þekkja, um mat og matreiðslu á aðeins léttari nótum en hefðbundnari matarblöð.
Að venju verður umfjöllunarefni blaðsins fjölbreytt en meðal efnis er hvað á að gera við súrar gúrkur, sumarsalöt, bernaise sósan verður krufin og grillið verður að sjálf sögðu á sínum stað. Aðalefnið er svo bbq svínaöxl.
Blaðið kemur út í 12.000 eintökum og er dreift frítt með fjöldadreifingu á kaffihús, í verslanir, veitingastaði, og stofnanir. Auk þess sem það verður aðgengilegt á www.matargatid.is
Leitið tilboða í auglýsingabirtingu hjá auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3300 eða auglysingar@frettatiminn.is

No comments:
Post a Comment