Fréttatíminn

Engum háður

Saturday, May 7, 2011

Ókeypis blöð fyrir farþega Strætó

Strætó bs. gerir ferðina ánægjulegri:


Frá og með fimmtudeginum 5. maí munu farþegar í u.þ.b. 30 strætisvögnum Strætó b.s. geta nælt sér í ókeypis blöð í vagninum til að lesa á meðan á ferðinni stendur. Markmiðið er að gera ferðalagið með strætó enn ánægjulegra. Þeir sem vilja geta einnig tekið blöðin með sér að ferð lokinni til að lesa síðar.

Boðið verður upp á þessa þjónustu í 30 strætisvögnum til að byrja með, en þetta er tilraunaverkefni og mun framhaldið ráðast af viðtökum farþega. Blöðin sem verða í boði í vögnunum eru Finnur.is, sem farþegar fá nýtt alla fimmtudagsmorgna, Monitor og Fréttatíminn, sem birtast í vögnunum á föstudagsmorgnum, og Grapevine sem fer einnig í vagnana á föstudagsmorgnum. Grapevine fer þó einungis í dreifingu þær vikur sem blaðið kemur út, en Grapevine er gefið út hálfsmánaðarlega yfir sumartímann og mánaðarlega á veturna.

Merktar blaðagrindur verða í þeim strætisvögnum sem taka þátt í tilraunaverkefninu og geta farþegar sótt blöð þangað að vild. Þegar farið er úr vagninum býðst að taka blaðið með eða skila því aftur í blaðagrindina.

„Við hjá Strætó erum alltaf að leita leiða til að gera ferðina ánægjulegri fyrir farþega okkar og er þetta verkefni liður í því. Fjölmörg áhugaverð blöð eru gefin út í viku hverri og þótti okkur og útgefendum þessara fjögurra blaða þjóðráð að veita farþegum með þessum hætti aðgang að þeim til að stytta sér stundir á meðan á akstrinum stendur,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs.

No comments:

Post a Comment